Dekurdagar á Akureyri í október

Dekurdagar verða haldnir á Akureyri dagana 8. til 11. október næstkomandi eða frá fimmtudegi til sunnudags. Viðburðurinn er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki til að kynna vörur og fjölbreytta þjónustu á Norðurlandi.
Kvöldopnun verður á Glerártorgi á fimmtudeginum og í miðbænum á föstudeginum. Á báðum stöðum verður bleik dekurstemming, kynningar, tilboð og uppákomur, sem gera bleikan október að einstakri og eftirminnilegri upplifun.
Upplýsingar fyrir þátttöku
Í stað þess að senda út kröfur fyrir þátttökugjaldi (kr. 10.000) hefur verið ákveðið að óska eftir skráningu fyrirtækja og að tilgreint sé í leiðinni fjöldi slaufa sem fyrirtæki vilji.
Skráningarformið er hér.
Hægt er að nálgast slaufur hjá Vilborgu í Centro og á skrifstofu félagsins að Glerárgötu 24, 3. hæð. Hver slaufa kostar 5.000 kr. Ef mögulegt er væri vel þegið að fyrirtæki myndu skrá sig fyrir 1. október.
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis
Dekurdagar er einn stærsti styrktaraðili Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis hvert ár og í fyrra var safnað 7.7 milljónum króna fyrir félagið. Þessi upphæð safnaðist með þátttökugjöldum, slaufum á staura og einstökum framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu. Allt fé sem kemur inn fer beint til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis fyrir utan um 100.000 kr. sem fer í sameiginlegar auglýsingar og annan kostnað.
Dagskrá Dekurdaga verður birt á www.visitakureyri.is og á Facebook-síðu Dekurdaga.
Til að hafa samband er hægt að senda tölvupóst á dekurdagar@akureyri.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. september 2026










