Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

Davíð Máni gefur út nýtt lag og fagnar á Græna

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Davidh-Mani-1
kaffid.is

Akureyrski tónlistarmaðurinn Davíð Máni gefur út nýtt lag næstkomandi fimmtudag, 24. september, og mun fagna því með tónleikum á Græna Hattinum á Akureyri samdægurs. Ásamt Davíð munu hljómsveitirnar Hugarró og Unknown Fantasy stíga á svið á Græna Hattinum á fimmtudaginn.

Lagið sem kemur út á fimmtudaginn heitir Brain Sludge og er fyrsta lagið af væntanlegri plötu Davíðs. Hann stefnir að því að gefa út lag í október og nóvember og svo plötu í desember.

„Mér fannst það töff titill, sem passar kannski ekki beint við textann. En þetta lag er mér mjög náið þegar kemur að textanum þar sem ég samdi þetta um erfiðar aðstæður sem voru í fjölskyldunni um hríð og maður var hræddur um náinn ættingja sem maður var ekki alveg viss um að myndi meika það í gegnum baráttuna en sem betur fer er sá ættingi ennþá með okkur í dag og um þann tíma samdi ég þetta lag og þennan texta og reyndi ég að setja mig kannski í spor þeirrar manneskju og hvernig upplifunin gæti hafa verið,“ segir Davíð í spjalli við Kaffið.

Tónleikarnir á fimmtudaginn hefjast með upphitun klukkan 20:30. Davíð segist hafa ákveðið að halda tónleika þar sem hann verður 25 ára á fimmtudaginn.

„Mig langaði að spila og hví ekki að prófa að gera þetta nánast sjálfur og sjá hvernig það fer, ég held að það leiði bara að góðu í reynslubankan. Við má búast kvöldi sem fer víðs vegar um rokk heiminn frá grunge, í alt metal yfir í doom metal og pönk og margt fleira þannig að rokk aðdáendur á Akureyri ættu ekki að láta þetta framhjá sér fara. Einnig hvet ég Akureyringa til að styðja við þessa senu því við erum allir local tónlistarmenn og við ættum að standa saman í að halda tónlistarsenuni á Akureyri á lífi! Svo verðum við með eitthvað gotterí til sölu eins og geisladiska og boli þó það sé eitthvað búið að minnka á lagernum,“ segir Davíð.

Nánar um tónleikana.

Tengdar greinar

Uppfært: 21. september 2026