Áslaug Kristjánsdóttir féll af hestbaki þegar hún var ástamt eiginmanni sínum í reiðtúr á reiðveginum skammt frá tjaldsvæðinu að Hömrum í gærkvöldi. Tildrög slyssins voru þau að hestur Áslaugar trylltist þegar hann sá og heyrði óvænt í tjaldi og bíl sem ferðamenn höfðu tjaldað í vegkanntinum. Áslaug féll af baki með þeim afleiðingum að hún rifbeinsbrotnaði auk þess sem lungu hennar féllu saman. Hún liggur nú á SAk.
Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá mynd af því hvar tjaldinu var tjaldað.
Atvikið var tilkynnt til lögreglu en ferðamennirnir voru á bak og burt þegar ræða átti við þá seinna um kvöldið.
„Þau koma þarna yfir hæðina og hestarnir hja mömmu tryllast við að sja og heyra i tjaldinu. Mamma dettur af baki og slasastst illa. Hún er núna á sjúkrahusi, rifbeinsbrotin og lunga féll saman. Hjálmurinn bjargaði henni þar sem hún fékk gott höfuðhögg líka en hjálmurinn fer í ruslið,“ segir Dagný Gunnarsdóttir, dóttir Áslaugar í samtali við Kaffið.
UMMÆLI