Darri fundinn – Thelma vill þakka fyrir hjálpina við leitina

Fundinn
Fundinn

Darri Ólason, maðurinn sem leitað var að í Danmörku í gær er kominn í leitirnar. Thelma Karen Hilmarsdóttir, stjúpdóttir Darra, birti í gær færslu á Facebook þar sem óskað var eftir hjálp við að finna hann. Thelma sagði í samtali við Kaffið.is að Darri væri nú fundinn og væri á leiðinni til Íslands.

Thelma vildi koma á framfæri þökkum til þeirra sem hjálpuðu til við að finna Darra. Mér fannst æðislegt að sjá hvað margir voru tilbúnir að hjálpa við leitina,” segir Thelma

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!