MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Dansskóli Steps á Akureyri fagnar 12 ára afmæli

Eftir María Hjelm·
steps2
Mynd: Steps· kaffid.is

Dansskóli Steps fagnar 12 ára afmæli sínu í dag, 1. júní.

„Á þessum 12 árum höfum við fengið að fylgjast með dönsurum á öllum aldri vaxa og dafna. Frá tveggja ára krílum að stíga sín fyrstu spor í danssalnum til unglinga og fullorðinna sem hafa fundið sína ástríðu og gleði í dansinum. Árin hafa verið viðburðarík. Við höfum sett upp ótal sýningar, tekið þátt í keppnum, komið fram á fjölmörgum viðburðum um allt land og skapað saman helling af minningum sem lifa áfram hjá okkur,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Steps.

Skólinn hefur byggt upp öflugt starf á undanförnum árum og hefur meðal annars verið keppandi á heimsmeistaramóti Dance World Cup síðan árið 2019. Þar hafa nemendur sýnt eftirtektaverðan árangur og meðal annars orðið heimsmeistarar í jazzballet og lent í þriðja sæti í samtímadansi.

„Það sem stendur þó upp úr eru ekki bara verðlaunin, sýningarnar eða viðburðirnir heldur allt fólkið sem hefur verið hluti af ferðalaginu. Vináttan, samveran, hláturinn, lærdómurinn og sjálfstraustið sem byggist upp í danssalnum er það sem gerir Steps að því sem það er í dag,“ segir í tilkynningunni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026