Sveinn Margeir Hauksson og Daníel Hafsteinsson hafa báðir rift samningum sínum við KA og eru á leið til Víkings.
Daníel, sem er 25 ára, átti gott tímabil með KA í sumar, skoraði fimm mörk í 25 deildarleikjum og tvö mörk í fjórum bikarleikjum. Daníel hefur leikið meira og minna allan ferilinn með KA en fór til Helsingborgar árið 2019 og kom heim og lék eitt tímabil hjá FH árið 2020 áður en hann fór aftur til KA snemma árs 2021. Daníel á að baki 19 landsleiki fyrir yngri landslið íslands og hefur skorað í þeim eitt mark. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Suður Kóreu þann 11.nóvember 2022. Sveinn Margeir, sem er 23 ára sóknarmiðjumaður, verður einungis í um sex vikur á Íslandi næsta sumar þar sem hann er í háskólanámi í Bandaríkjunum. Kemur þetta fram á vefsíðu fotbolti.net.
„Báðir eru þeir gríðarlega spennandi leikmenn. Daníel getur spilað meira eða minna allar stöður miðsvæðis á vellinum. Sveinn Margeir er gríðarlega kraftmikill leikmaður sem getur spilað allar framliggjandi stöður. Það skiptir okkur miklu máli að fá ákveðna tegund af leikmönnum í Víkina og báðir passa þeir fullkomlega inn í þá hugmyndafræði sem við vinnum eftir hér í Hamingjunni,“ segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, á vefsíðu félagsins.
UMMÆLI