Dæmdu mig, ég geng á glerinu

Akureyringurinn og myndlistarkonan Thora Love mætir á hátíð íslenskra heimildamynda, Skjaldborg, á Patreksfirði í ár með persónulegt verk sem hún vonar að geti opnað augu fólks. Myndin heitir „Dæmdu mig, ég geng á glerinu“ og er hún hennar fyrsta heimildarmynd í fullri lengd. Verkið er lokaverkefni hennar úr meistaranámi í listkennslufræðum við Listaháskóla Íslands og fjallar um son hennar og 20 ára baráttu hans við fíknisjúkdóminn.
Thora á rætur að rekja til Akureyrar en hún bjó erlendis í rúma tvo áratugi áður en hún sneri aftur heim. Hún segist alla tíð hafa verið mikill skrásetjari og er áhugann ekki langt að sækja en pabbi hennar var Karl Hjaltason, smíðakennari við Barnaskóla Akureyrar, sem margir í bænum muna eftir.
„Hann var alltaf að taka myndir og kvikmyndir og ég er með allt efnið frá honum einmitt líka,“ segir Thora og útskýrir að myndin sé unnin upp úr stóru einkasafni af gömlum VHS og 8mm spólum, ásamt ljóðum og teikningum úr skissubókum hennar.
Sagan sjálf er einlæg frásögn af lífi sonar hennar sem byrjaði að nota hugbreytandi efni aðeins 15 ára gamall. Í tvo áratugi hefur fjölskyldan gengið í gegnum mikla erfiðleika, fjölmargar fangelsisvistir og baráttu við kerfið. Thora lýsir því hvernig það er að vera móðir í þessum aðstæðum: „Sagan sjálf fjallar í rauninni um mínar tilfinningar og hvernig það er að vera móðir drengs sem að þróar með sér fíknsjúkdóm og fær ekki hjálp við sínum vanda“.
Það var í starfi hennar sem kennari á unglingastigi sem hún fann sterka þörf fyrir að miðla sögunni áfram. Hún sá hegðun hjá nemendum sínum sem vöktu upp minningar um son hennar og vildi hún nýta eigin reynslu sem forvarnar- og fræðsluefni.
„Rannsóknarspurningin mín þegar ég fer inn í verkefnið það er þessi hugleiðing hvort að mín reynsla geti hjálpað einhverjum,“ segir Thora.
Hún leggur mikla áherslu á mennskuna í verkinu og minnir á að enginn velji sér þennan sjúkdóm, hvorki fíkillinn sjálfur né fjölskyldan. Myndin er því eins konar ádeila á samfélagið og þá fordóma sem aðstandendur mæta oft.
Það var óvæntur en mikill heiður þegar myndin var valin inn á heimildakvikmyndahátíðina Skjaldborg. Thora játar því að hún hafi varla trúað því sjálf að hún yrði valin innan um fólk sem starfar alla daga við kvikmyndagerð. „Þetta er náttúrulega afskaplega mikill heiður og bara ég er alveg ótrúlega stolt af mér,“ segir hún hress.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










