Karlmaður á Akureyri og Vörður tryggingarfélag voru í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær dæmd til þess að greiða konu 2 milljónir króna í miskabætur vegna umferðarslys sem varð árið 2017. Þá voru stefndu einnig dæmd til greiðslu málskostnaðar. Mbl.is greinir frá.
Umferðarslysið fyrir þremur árum olli því að konan slasaðist og hundur hennar drapst samstundis. Fram kemur í dóminum að hundurinn hafi kastast 21 metra við höggið þegar hann varð fyrir bifreiðinni og konan, eigandi hans, um 5 metra. Héraðsdómur féllst á það með konunni að karlmaðurinn hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi þegar hann í nóvember 2017 ók bifreið sinni á stefnanda þar sem hún gekk yfir gangbraut á Hörgárbraut.
Karlmaðurinn játaði skýlaust á sig sök í málinu. Snerist deila málsaðila í skaðabótamálinu um það hvort karlmaðurinn hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi er hann ók á konuna og hund hennar. Stefnandi krafðist þess að stefndu yrði dæmd óskipt til að greiða honum 2 milljónir króna ásamt almennum skaðabótavöxtum.
UMMÆLI