
Kona frá Akureyri hefur verið dæmd í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Atvikið átti sér stað á heimili fyrrverandi sambýlismanns konunnar þann 29. maí síðastliðinn.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Samkvæmt dóminum veittist konan að manninum og henti að honum ilvatnsglasi og blómapott úr leir ásamt því að slá hann ítrekað og klóra. Maðurinn hlaut klórför í kringum háls, á bringu og niður að lífbeini, á handleggjum og yfir olnbogum, á fótum og á mjöðm, eymsli í hnjám og baki, og kúlu yfir úlnlið.
Dómari taldi 45 daga skilorðsbundið fangelsi hæfilega refsingu þar sem konan viðurkenndi sök og vegna vandkvæða í einkalífi hennar. Hún var jafnframt ákærð fyrir innbrot en fallið var frá þeim hluta sakaratriða.










