Bandaríkjamaðurinn Blaine McConnell birti í dag ansi skemmtilegt myndband á Instagram síðu sinni þar sem hann reynir fyrir sér í íslenskri tungu. Blaine er atvinnumaður í Crossfit og keppir undir merkjum Crossfit Aarhus með unnustu sinni Björk Óðinsdóttur.
Sjá einnig: Björk Óðinsdóttir í öðru sæti á Norðurlandamótinu í ólympískum lyftingum
Blaine og Björk kepptu saman á Crossfit leikunum á þessu ári undir merkjum Crossfit Nordic og eru einnig liðsfélagar í liðinu NPGL Phoenix Rise. Þau trúlofuðu sig í sumar þegar Björk bað hans í fjallgöngu með liði þeirra.
Sjá einnig: Björk Óðinsdóttir leikur í vinsælum sjónvarpsþáttum í Svíþjóð
Blaine er þessa stundina á fullu að reyna að læra íslensku fyrir brúðkaupið og hægt er að sjá hvernig honum hefur gengið hingað til í stórskemmtilegu myndbandi hér að neðan.
UMMÆLI