MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

CANDLES hlýtur 500 þúsund danskra króna framhaldsstyrk

Eftir Ingólfur Stefánsson·
unak-frett-cnadles-styrkur-20.08.2026
kaffid.is

Rannsóknarverkefnið CANDLES: Sustainable Nordic-Arctic Educational Leadership in Times of Opportunities and Challenges hefur hlotið framhaldsstyrk að upphæð 500 þúsund danskra króna úr Nordic Arctic Programme, sem er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnið er þriggja ára verkefni sem fjallar um skólastjórnun í dreifðum byggðum á Norðurlöndum og norðurslóðum. Sigríður Margrét Sigurðardóttir, dósent og deildarforseti Kennaradeildar Háskólans á Akureyri, leiðir verkefnið fyrir hönd alþjóðlega rannsóknarhópsins NordLead.

„Það er okkur ómetanlegt að fá þennan framhaldsstyrk og sérstaklega ánægjulegt að verkefnið hafi aftur fengið hæstu mögulegu styrkupphæð. Fyrsti styrkurinn gerði okkur kleift að leggja traustan grunn að samstarfinu og nú getum við stigið næsta skref sem er að vinna með skólastjórunum sjálfum. Það er þar sem verkefnið fer fyrir alvöru að lifna við,“ segir Sigríður Margrét, eða Sigga Magga eins og hún er jafnan kölluð, í samtali við heimasíðu Háskólans á Akureyri.

Til lengri tíma er stefnt að því að niðurstöður rannsóknirnar nýtist bæði skólastjórnendum og þeim sem móta menntastefnu. Meðal annars verða þróaðar hagnýtar leiðbeiningar um sjálfbæra skólastjórnun sem taka mið af sérstökum aðstæðum fámennra og dreifðra byggða á Norðurlöndum og norðurslóðum.

Smelltu hér til að nálgast frekari upplýsingar um CANDLES-verkefnið

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026