BYD tékkar í öll boxin

Það er nú rétt rúmlega ár síðan Kaffið leit við til félaganna Sigurðar Ragnars Arnarssonar og Níels Þóroddsonar á Bílasölu Akureyrar. Úkraínumaðurinn Andrii Chuprin er einnig enn á verkstæðinu og Torfi Sigurjónsson hefur nú slegist í hópinn.
Við settumst inn á skrifstofu hjá Sigga þar sem hann og Níels segja okkur allt það létta. Það helsta í fréttum frá þeim er að nú hafa þeir tekið inn nýja rafmagnsbíla í sölu. Bílarnir bera heitið BYD, eða Build your dreams og eru framleiddir í Kína. BYD eru stærsti rafbílaframleiðandi í heimi og það sem Sigurður segir merkilegt er að næstum allir íhlutir bílanna eru framleiddir af BYD sjálfum. Verksmiðja BYD er á stærð við San Fransisco borg og rennur 1 fullgerður bíll út af færibandinu hjá þeim á 30 sekúndna fresti allan sólahringinn.
Sigurður segir að áhugi bæjarbúa á bílunum hafi verið mikill. Vatt ehf sem er umboðsaðili BYD á Íslandi leitaði til Bílasölu Akureyrar eftir samstarfsaðila fyrir norðan og þá hafi þá hafi boltinn farið að rúlla.
„Ég tel að Vatt deili okkar áherslum og gildum í bílasölu og ég fann strax að við áttum góða samleið. Vatt er hliðarfyrirtæki Suzuki og er sami eigandi búinn að vera á vaktinni síðan 1989. Þeir eru þægilegir í samskiptum og í þeim býr mikil sál. Vatt hefur ánægju viðskiptavina að leiðarljósi sem mér finnst vera ábótavant hjá stóru umboðunum í dag,“ segir Sigurður.
Þeir fullyrða að BYD haki við í öll box hjá væntanlegum kaupendum hvað varðar útlit, aksturseiginleika, drægni og gæði.
„Fólk gerir miklar kröfur til bílaframleiðanda í dag. Nýji bíllinn þarf að vera töff í útliti, vel búinn aukahlutum, fjórhjóladrifinn, þægilegur í akstri, með mikla drægni og á góðu verði. Þarna tékkar BYD í öll boxin hjá viðskiptavinum og þess vegna hafa móttökurnar verið frábærar hjá Akureyringum,“ bætir Níels við.
Þó svo BYD sé kominn á söluna hjá þeim eru þeir hvergi nærri hættir að selja notaða bíla sem þeir segja að sé enn stór partur hjá fyrirtækinu.
„Fólki finnst gaman að koma og skoða allar týpur af notuðum bílum og við lítum á þetta sem mikilvæga þjónustu fyrir samfélagið og nærumhverfi okkar. Fólk vill geta komið og selt gamla bílinn sinn og við viljum vera hér og aðstoða fólk við það.“
Níels segir að þeir reyni eftir bestu getu að taka inn það sem viðskiptavinir koma með á borðið til þeirra, þar á meðal hafa þeir selt mótorhjól, tjaldvagna og húsbíla en þeir hafa alltaf jafn gaman að því stússast í þessu fyrir viðskiptavini.
Svo berst talið að hvað bíla þeir sjálfir keyra. Níels segist vera á bíl merktum Bílasölu Akureyrar á hliðunum og hlær en Siggi segist keyra um á gömlum ´92 árgerð af E-Benz sem er þó ekki ekinn meira en 192 þúsund kílómetra. Hann segir að að þetta sé enginn lúxus bíll og engin sértýpa en þetta er hans bíll, sem honum finnst gaman að keyra og heldur hann mikið upp á bílinn.
Talið berst svo aftur að BYD bílunum. Þá vildu þeir endilega að undirritaður myndi fá að prufukeyra sýningareintakið sem stóð á gólfinu þeirra, sem ég þáði. Sem eigandi Toyota Auris frá 2007 þá verð ég að segja munurinn er ansi mikill á mínum gamla skrjóð og splunkunýjum BYD Sealion 7 en lesendur geta kíkt á Bílasölu Akureyrar og upplifað sjálfir.
Þeir félagar eru alltaf tilbúinir að taka á móti gömlum og nýjum viðskiptavinum í einn bolla en þeir segja það ánægjulegt hve margir viðskiptavinir líti við hjá þeim eftir kaup á nýjum eða notuðum bíl. En einnig er hægt að skoða úrvalið á https://www.bilak.is/
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










