MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Búið er að opna gamla veginn yfir Vaðlaheiði

Eftir María Hjelm·
vadhlo
Mynd: Facebook-síða Vaðlaheiðarganga· kaffid.is

Gamli vegurinn yfir Vaðlaheiði hefur verið opnaður fyrir sumarið. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga.

Vegurinn er malarvegur en vel fær öllum ökutækjum undir 5 tonnum. Við bendum vegfarendur þó að aka af gætni og halda sig frá vegköntum þar sem sums staðar er enn bleyta og jarðvegurinn getur verið mjúkur. Einnig hefur fé verið sleppt á heiðina. Gætum því sérstaklega að kindum og lömbum sem geta verið á eða við veginn. Hægur akstur og tillitssemi gagnvart dýralífinu gerir ferðina öruggari fyrir alla. Vaðlaheiðin er ekki bara leið á milli staða – hún er áfangastaður í sjálfu sér. Taktu þér tíma, slökktu á útvarpinu, opnaðu gluggann og leyfðu náttúrunni að njóta sín. Hlustaðu á lækjarniðinn, fuglasönginn og jarmið í lömbunum. Og ekki gleyma að stoppa á öruggum stað og njóta hins stórbrotna útsýnis yfir Eyjafjörð og Fnjóskadal.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026