BSO gert að víkja með húsakost og starfsemi við Standgötu innan sex mánaða

Bæjarráð á Akureyri hefur staðfest úthlutun skipulagsráðs á lóðum við Hofsbót á Akureyri til verktakafyrirtækisins SS Byggir. Frá þessu greinir á vef Akureyri.net.

Þar kemur meðal annars fram að úthlutun lóðarinnar feli jafnframt í sér að Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO, víki með starfsemi sína og húsnæði af lóð við Strandgötu innan sex mánaða. Þá hafnar ráðið mótmælum BSO á úthlutuninni en hún byggist á því að málið sé enn til meðferðar hjá dómstólum.

Mál BSO gegn bænum bíður þó enn meðferðar í héraði en fyrr í sumar vísaði Landsréttur máli BSO gegn bænum aftur þangað og þar bíður málið enn meðferðar. Þar gerir Bifreiðastöðin þá kröfu að dómur viðurkenni ótímabundinn lóðarétt BSO og óuppsegjanleg lóðaréttindi.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!