Hið árlega pílumót Sjally Pally var haldið í Sjallnum um helgina og stóðu Brynja Herborg og Svíinn Björn Lejon uppi sem sigurvegarar í kvenna- og karlaflokki. Mótið er á vegum píludeildar Þórs og flestir af sterkustu pílukastara landsins tóku þátt.
Líkt og í fyrra voru John McDonald og Russ Bray meðal gesta, ásamt Magna Ásgeirssyni sem stýrði tónlist og stemningu í salnum.
Í úrslitaleik kvenna mættust Brynja Herborg og Hrefna Gerður. Leiknum lauk með 4-2 sigri Brynju. Björn Lejon fór með sigur af hólmi í karlaflokki. Hann hóf kvöldið á því að leggja Halla Birgis í 8-manna úrslitum og mætti því næst meistara síðasta árs, Alexander Veigari Þorvaldssyni, í undanúrslitum þar sem Björn hafði betur.
Í úrslitaleiknum mættust Björn og Vitor Charrua. Þar reyndist Björn sterkari og vann leikinn 5-2. Þetta er bæting hjá Birni frá mótinu í fyrra þegar hann féll úr leik í 8-manna úrslitum.










