MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Bryndís Rún Hansen fjórfaldur Íslandsmeistari

Eftir Ritstjórn·
Bryndís Rún Hansen fjórfaldur Íslandsmeistari
Bryndís stóð sig vel um helgina

Sundkonan Bryndís Rún Hansen úr sundfélaginu Óðni var ein af stjörnum Íslandsmótsins í sundi sem fram fór í Laugardalnum í Reykjavík um helgina. Bryndís gerði sér lítið fyrir og nældi í fjögur gullverðlaun.

Eins og greint var frá á Kaffinu á föstudag nældi Bryndís sér í gull og silfur á fyrsta keppnisdegi.

Hún var alls ekki hætt því hún var fyrst í mark í 50 metra flugsund­i og 200 metra skriðsundi í gær og í 100 metra skriðsundi á laugardag.

Bryndís Rún kom til Íslands alla leið frá Hawaii til að taka þátt í Íslandsmótinu. Bryndís stundar nám við háskóla í Hawaii og æfir og keppir með sundliði skólans.

Sjá einnig

Í skýjunum með fimm Íslandsmet á fimm dögum

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026