Bryndís Rún Hansen, sundkona úr Óðni, heldur áfram að gera það gott á Smáþjóðaleikunum en hún nældi sér í gull í skriðsundi á fyrsta keppnisdegi.
Í gær var svo komið að keppni í 100 metra flugsundi og þar reyndist Bryndís Rún hlutskörpust en hún synti á 1:01,57 mínúta. Bryndís var einnig hluti af boðsundssveit Íslands sem hreppti gullið í 4×200 metra skriðsundi. Þær Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sunneva Dögg Friðriksdóttir skipuðu sveitina ásamt Bryndísi.
Bryndís er á 24.aldursári og hefur fest sig í sessi sem ein fremsta sundkona landsins en hún býr á Hawaii þar sem hún æfir sund af miklum móð ásamt því að stunda þar nám.
Sjá einnig
UMMÆLI