MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Bryndís Héðinsdóttir sett sem sýslumaður á Norðurlandi eystra

Eftir Ingólfur Stefánsson·
freysteinn-g-jonsson-Wy9GPhPrO1E-unsplash
Mynd: Freysteinn G. Jonsson· kaffid.is

Bryndís Héðinsdóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Norðurlandi eystra frá og með 1. ágúst. Þá hefur Íris Dröfn Árnadóttir verið sett sem sýslumaður á Austurlandi.

Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, hefur beðist lausnar úr embætti. Hann tekur við starfi sveitarstjóra Húnabyggðar frá 1. október. Svavar hefur verið sýslumaður á Norðurlandi eystra frá árinu 2015 og settur sýslumaður á Austurlandi síðan 2024. Þar áður var hann sýslumaður og lögreglustjóri á Húsavík.

Öll sýslumannsembættin verða sameinuð í eitt embætti þann 1. janúar 2027 þegar ný lög um sýslumann taka gildi. Nýr sýslumaður verður skipaður í ágúst.

„Þetta er ein stærsta stjórnsýslubreyting síðari ára og hefur mikil vinna verið unnin í ráðuneytinu í samstarfi við sýslumannsembættin á landinu öllu til að tryggja að sameiningin gangi vel fyrir sig,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026