Handboltamaðurinn Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og leikur því áfram með sínu uppeldisfélagi næstu árin. Bruno kom af krafti ungur inn í markið í meistaraflokksliði KA en hann verður 21 árs á næstu dögum.
„Það verður afar gaman að fylgjast áfram með hans framgöngu. Í vetur hefur Bruno verið einn besti markvörður Olísdeildarinnar en hann hefur verið með eina bestu hlutfallsmarkvörsluna í deildinni og þá lék hann með U21 árs landsliði Íslands á dögunum er Ísland vann frækinn sigur á liði Frakka 24-33 í Frakklandi,“ segir í tilkynningu á vef KA.
„Við erum afar spennt fyrir því að halda Bruno áfram innan okkar raða en auk þess að vera frábær í markinu er Bruno þekktur fyrir frábærar sendingar upp völlinn sem hafa gefið fjölmörg mikilvæg hraðaupphlaupsmörk undanfarin ár.“
UMMÆLI