MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Brúðkaupsveislan, gluggasýning og óformlegt útibrúðkaup

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-08-25-at-14.53.53
kaffid.is

Í tilefni Akureyrarvöku bjóða listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten til gluggasýningar á vinnustofu Brynju í Hafnarstræti 88.

Slegið verður upp brúðkaupsveislu þar sem rómantík, ást og gleði ráða ríkjum. Í glugganum verður meðal annars þriggja hæða brúðkaupsterta, silfur og kristall, brúðarklæðnaður og önnur fínheit.

Tilgangurinn er einfaldur: Að gleðja vegfarendur og lífga upp á umhverfið. Sýningin er öllum opin og hægt er að njóta hennar allan sólarhringinn utan frá séð.

Hápunktur sýningarinnar verður laugardaginn 29. ágúst þegar efnt verður til kærleiksgjörnings, hópathafnar og óformlegs útibrúðkaups.

Ekkert trúarlegt eða lögbundið – heldur kærleiks- og viljayfirlýsing um að fara vel með sig og leggja rækt við það sem gott er.

Öll eru velkomin að mæta og gifta sig sjálfum sér eða því sem hugurinn girnist. Það getur verið manneskja, vinahópur, pottaplanta, verkfæri eða bara hvað sem er sem gefur lífinu lit.

Gestir eru hvattir til að taka eitthvað táknrænt með sér, til dæmis blóm eða persónulegan hlut, mæta í brúðarklæðnaði – eða bara því sem hentar veðri og vindum.

Þau sem mæta tímanlega geta útbúið sér brúðarslör á staðnum og fengið blóm í barminn.

Að lokinni athöfn verður veisla og gleði til kl. 16:30.


BRÚÐKAUPSVEISLAN

Gluggasýning í tilefni Akureyrarvöku 2026

Hafnarstræti 88 | 28. ágúst–17. september

KÆRLEIKSGJÖRNINGUR

VIL ÉG ELSKA MIG, VIRÐA MIG OG HAFA GAMAN?

Útibrúðkaup | laugardaginn 29. ágúst kl. 15:00–15:30

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026