Brons í Mónakó

Smáþjóðameistaramótinu eða Europian Challengers Cup lauk í gær. UFA átti tvo fulltrúa í 14 manna landsliðshópi Íslands. Tobias Þórarinn Matharel og Garðar Atli Gestsson tóku þátt í sínu fyrsta fullorðins verkefni með landsliði Íslands og árangurinn var mjög góður.
Tobias keppti í langstökki, hann átti í smá brasi og stökk 6,57m og hafnaði í 10 sæti örstutt frá úrslitum. Tobias hljóp einnig fyrsta sprett í boðhlaupssveit Íslands en sveitin hafnaði í sjöunda sæti.
Garðar átti frábæran dag en hann bætti sig í spjótkastinu þegar hann kastaði 65,35m og hafnaði í þriðja sæti sem er frábært í hans fyrsta verkefni.
Þetta kast er örstutt frá lágmarki á HM 20 sem er virkilega góður árangur og er Garðar með annan besta árangur í Evrópu með 800 gr. spjót í aldursflokknum 16-17 ára, en sá flokkur kastar 700 gr. spjóti. Það verður spennandi að sjá hvað Garðar gerir á Sumarleikum HSÞ um næstu helgi.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










