MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Bríet Fjóla keypt frá Þór/KA til Þróttar

Eftir María Hjelm·
748718690_1539048420935710_8288746948626033379_n
Mynd: Knattspyrnufélagið Þróttur/Facebook· kaffid.is

Stjórn Þórs/KA og knattspyrnudeildar Þróttar hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Bríetar Fjólu Bjarnadóttur í Þrótt og taka þau gildi þegar í stað. Samningur Bríetar Fjólu við Þór/KA gilti út yfirstandandi tímabil en samkomulag varð milli félaganna, leikmannsins og forráðamanna að hún skipti strax yfir til Þróttar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þór/KA.

„Bríet Fjóla er eins og knattspyrnuáhugafólk veit gjörla ein af efnilegustu knattspyrnukonum landsins, fædd 2010 og hefur nú þegar verið í meistaraflokkshópi Þórs/KA í þrjú og hálft tímabil.

Bríet Fjóla á að baki 48 meistaraflokksleiki með Þór/KA, þar af 38 í Bestu deildinni. Hún kom fyrst við sögu í meistaraflokki haustið 2023 þegar hún kom inn af varamannabekknum í 3-2 sigurleik gegn Breiðabliki 13. september, leik sem jafnframt var minningarleikur um afa hennar, Guðmund Sigurbjörnsson, fyrrverandi formann Þórs. Þá á hún að baki 15 landsleiki með U16, U17 og U18 landsliðum Íslands.

Stjórn Þórs/KA þakkar Bríeti Fjólu fyrir hennar framlag til félagsins og óskar henni góðs gengis á nýjum vettvangi,“ segir í tilkynningunni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026