MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Breytingar í innanlandsflugi vegna nauðsynlegs viðhalds

Eftir Ingólfur Stefánsson·
bltc2ec1de5dea362b9
kaffid.is

Vegna nauðsynlegs viðhalds á einni af DHC 8 Q400 flugvélum Icelandair hefur þurft að gera tímabundnar breytingar á flugáætlun til Akureyrar og Egilsstaða sem mun vara næstu vikur. Til að lágmarka áhrif breytinganna hefur Icelandair bætt við 15 aukaferðum (30 flugleggjum) til Akureyrar og Egilsstaða frá og með morgundeginum, fimmtudeginum 10. september, og næstu tvær vikurnar.

„Þótt sætaframboð verði tímabundið minna en venjulega er unnið markvisst að því að tryggja sem besta þjónustu og flugframboð til farþega. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi staða kann að valda og hvetjum farþega sem hyggjast ferðast innanlands á þessu tímabili til að bóka flug með fyrirvara eftir því sem kostur er,“ segir í tilkynningu frá Icelandair.

Tengdar greinar

Uppfært: 9. september 2026