Brák Jónsdóttir – listamannaspjall um verkin fyrir Sigurhæðir og seinasti sýningardagur
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Á morgun, sunnudaginn 11. október klukkan 13 til 13.30 er boðið í samtal með Brák Jónsdóttur myndlistarmanni í Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum. Rætt verður um verk Brákar sem hún vann í ár sérstaklega fyrir Sigurhæðir, tilurð verkanna, hugmyndir, áferði og áhrif.
Sunnudagurinn er líka seinasti opni dagurinn á Sýningu ársins 2026 í Sigurhæðum og er opið þann dag klukkan 11 til 14.
Eftir það verður opið nokkra sérvalda og sérstaklega auglýsta daga inn í veturinn og svo verður hægt að hafa samband fyrir hópa og leigu á aðstöðu fyrir fundi og hittinga á flora.akureyri@gmail.com.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. október 2026





