Bónus hefur hætt að selja hefðbundnu plastburðarpokana sem allir þekkja. Frá þessu er greint á Facebook síðu Bónus.
Ákveðið var að hefja frekar sölu á lífniðurbrjótanlegum burðarpokum.
Þá hefur Bónus ákveðið að gefa 100.000 fjölnota burðarpoka viðskiptavinum sínum.
Bónus rekur tvær verslanir á Akureyri, í Langholti og í Naustahverfi, en á Íslandi eru 32 Bónus verslanir.
UMMÆLI