MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Bólusetningar á HSN fyrir íbúa 80 ára og eldri í næstu viku

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screen Shot 2021-02-25 at 15.11.05
kaffid.is

Í næstu viku, þann 2. mars, munu 720 skammtar af Pfizer bóluefninu berast á Norðurlandið. Bóluefnið verður nýtt til að bólusetja íbúa 80 ára og eldri og er búist við að fara langleiðina með að klára þann hóp með þessum skömmtum.

Á Akureyri verður fólk boðað með SMS skilaboðum þar sem tími og staðsetning kemur fram en hringt verður í þá sem ekki hafa farsíma. Á Akureyri er gert ráð fyrir að bólusetja eftir hádegi þriðjudaginn 2. mars á slökkvistöð Akureyrar.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi fær fólk boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram. Bólusetningar munu fara fram dagana 2. – 5. mars.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026