Bókagjöf til minningar um Ásgeir H Ingólfsson

Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að leikskólanum Lundarseli-Pálmholti hafi borist vegleg bókagjöf frá Hrefnu Hjálmarsdóttur leikskólakennara til minningar um son hennar Ásgeir H Ingólfsson.
Ásgeir lést í byrjun árs 2025 aðeins 48 ára að aldri. Hann var ljóðskáld og blaðamaður, fæddur og uppalinn á Akureyri. Gjöfin er gjafakort frá Pennanum-Eymundssyni sem ætlað er til kaupa á völdum barnabókum fyrir leikskólann.
Með gjöfinni fylgdi bréf þar sem Hrefna rifjar upp fyrstu ár Lundarsels og þann tíma sem sonur hennar gekk þar í leikskóla. Í bréfinu segir hún meðal annars frá því að það hafi verið síðsumars 1979 þegar Lundarsel tók til starfa og að opnun leikskólans hafi verið mikið fagnaðarefni fyrir ungar fjölskyldur í hverfinu. Ásgeir, sem þá á þriðja ári, var í hópi fyrstu barnanna sem hófu leikskólagöngu sína í Lundarseli.
„Ásgeir var afskaplega ánægður í leikskólanum og fór þangað ævinlega glaður í bragði,“ skrifar Hrefna í bréfi sínu. Ásamt því segir hún: „Hann hafði alltaf mikinn áhuga á sögum og ævintýrum og seinna meir lærði hann bókmenntafræði og skapandi skrif,“
Á fullorðinsárum starfaði Ásgeir meðal annars við kennslu og sem menningarblaðamaður. Hann lést úr krabbameini í janúar árið 2025.
Hrefna segir að þegar hún hafi nýlega átt erindi í Lundarsel þá hafi minningar um þessi góðu ár í lífi Ásgeirs vaknað á ný.
Um þessar mundir standa aðstandendur hans og vinir að útgáfu ljóðabókar með ljóðum sem hann skildi eftir í handriti. Bókin kemur út í tilefni þess að Ásgeir hefði orðið fimmtugur í dag, 20. ágúst 2026.
Í minningu Ásgeirs og þeirra góðu ára sem hann átti í Lundarseli ákvað Hrefna að færa leikskólanum veglegt gjafakort til að kaupa nýjar barnabækur fyrir leikskólabörnin.
Sem þakklætisvott sendu börn og starfsfólk Lundarsels-Pálmholts Hrefnu þakkarbréf skreytt fallegri teikningu eftir þriggja ára barn. Í bréfinu stendur:
„Við í leikskólanum viljum færa þér okkar innilegustu þakkir fyrir dásamlega gjöf til leikskólans okkar. Það snerti okkur öll djúpt að finna þann hlýhug sem þú sýnir leikskólanum þar sem Ásgeir sonur þinn var sem barn. Að heiðra minningu hans á þennan hátt á 50 ára fæðingardegi hans er einstaklega fallegt.
Starfsfólk og börn í leikskólanum Lundarseli-Pálmholti.“
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










