MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Boðið upp á meistaranám í iðjuþjálfun í fyrsta sinn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
unak-frett-meistaranam-i-idjuthjalfun-27.08.2026-4
kaffid.is

Með þátttöku Háskólans á Akureyri í verkefninu OSNord stendur nú bæði stúdentum og starfandi iðjuþjálfum til boða aukið framboð námskeiða á meistarastigi og ný tækifæri til alþjóðlegrar samvinnu. Menntun iðjuþjálfa á Íslandi hefur um árabil falist í diplómunámi til starfsréttinda á meistarastigi við Iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri og HA er eini skólinn á Íslandi sem býður upp á slíkt nám. Þeir sem vildu ljúka fullri meistaragráðu í iðjuþjálfun þurftu því að leita til erlendra háskóla. Greint er frá á vef Háskólans á Akureyri.

Til að gera fólki kleift að ljúka meistaragráðu hófst árið 2023 þróunarverkefnið OSNord – Nordic Occupational Science Hub. Verkefnið byggist á samstarfi iðjuþjálfunarfræðideilda fjögurra háskóla á Norðurlöndunum: HA á Íslandi, Gautaborgarháskóla í Svíþjóð, Arcada í Finnlandi og OsloMet í Noregi. Verkefnisstjóri er dr. Sigrún Kristín Jónasdóttir, dósent við HA. Markmið verkefnisins er að efla meistaranám í iðjuþjálfun og iðjuvísindum á Norðurlöndum með sameiginlegri námsþróun og auknu faglegu samstarfi.

Árangur samstarfsins hefur þegar komið fram. Haustið 2026 gat Iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri í fyrsta sinn boðið upp á meistaranám í iðjuþjálfun, bæði til 90 og 120 ECTS. OSNord-samstarfið er einn af þeim þáttum sem gerðu þessa þróun mögulega.

„Fyrir íslenska iðjuþjálfa felur þetta í sér mikilvægan áfanga. Nú er ekki aðeins mögulegt að stunda meistaranám í iðjuþjálfun hér á landi, heldur opnast einnig aðgangur að sameiginlegu norrænu námsumhverfi sem eykur þekkingu á iðjuvísindum og stuðlar að áframhaldandi þróun fagsins til framtíðar,“ segir á vef HA.

Smelltu hér til að lesa ítarlegri umfjöllun á vef HA.

Smelltu hér til að finna frekari upplýsingar um verkefnið.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026