Björn Steinar Sólbergsson í Akureyrarkirkju sunnudaginn 12. júlí

Björn Steinar Sólbergsson, upphafsmaður Sumartónleika í Akureyrarkirkju, leikur á hátíðinni sunnudaginn 12. júlí klukkan 17. Aðgangur er ókeypis og tekið er á móti frjálsum framlögum.
Björn Steinar stóð fyrir fyrstu Sumartónleikum í Akureyrarkirkju sumarið 1987. Hann hélt utan um hátíðina um árabil og mótaði hana. Orgeltónlist hefur alla tíð átt sinn sess á hátíðinni, því eitt af markmiðum hátíðarinnar er að gestir fái að heyra í merku orgeli Akureyrarkirkju. Á efnisskrá eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Louis Vierne, Pál Ísólfsson, Jón Nordal og Báru Grímsdóttur, auk þess sem Björn Steinar frumflytur nýtt Afmælisfanfar eftir Þorvald Örn Davíðsson.
Í tilefni af afmælisári Sumartónleika í Akureyrarkirkju verður nýtt tónverk, sérstaklega pantað í afmælisgjöf til hátíðarinnar og tónleikagesta, frumflutt á hverjum tónleikum í sumar.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










