MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Björn, Erlingur, Guðmundur og Hrefna hlutu heiðursviðurkenningu ÍBA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
heidursvidurkenningar_0G7A1624
kaffid.is

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2024 var lýst á Íþróttahátíð Akureyrar á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi í gær, 23. janúar 2025. Á athöfninni voru heiðursviðurkenningar Fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar afhentar.

Þau sem hlutu heiðursviðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu félags-, íþrótta- og æskulýðsmála á Akureyri í ár voru Björn Halldór Sveinsson (Íþróttafélagið Þór), Erlingur Kristjánsson (Knattspyrnufélag Akureyrar), Guðmundur Bjarnar Guðmundsson (Skíðafélag Akureyrar) og Hrefna Brynjólfsdóttir (Knattspyrnufélag Akureyrar).

Lyftingamaðurinn Alex Cambray Orrason hjá KA og knattspyrnukonan Sandra María Jessen hjá Þór/KA voru valin íþróttafólk Akureyrar en nánar má lesa um það hér að neðan.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026