Starfsmenn dýraeftirlits Akureyrarbæjar og lögreglunnar á Akureyri björguðu álft á Leirutjörninni í gær. Álftin hafði flækt sig í girni og þá hékk flotholt við kvið hennar sem og öngull í öðrum fæti hennar. Vegfarandi hafði tekið eftir að álftin kveinkaði sér og lét vita.
UMMÆLI