Mynd: Akureyri.is

Bjóða nemendum frítt í sund og skíði

Á morgun, fimmtudaginn 9. apríl, býður Akureyrarbær grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri frítt í sund og á skíði. Grunnskólanemar gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu, en framhaldsskólanemar í VMA og MA framvísa nemendaskírteinum.

„Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1300 kr. til að komast í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Sundlaugar Akureyrar, í afgreiðslu Hlíðarfjalls og á N1,“ segir í tilkynningu bæjarins á Akureyri.is.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!