MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Bjarni keppti á HM í pílukasti

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Íslenska liðið

Pílumaður Þórs síðustu fjögur árin, Bjarni Sigurðsson var fulltrúi liðsins á heimsmeistaramótinu í pílu sem fram fór í Kobe í Japan dagana 4. 5. og 6. október.

Bjarni keppti á móti fyrrverandi heimsmeistaranum Wesley Harms og þurfti að játa sig sigraðan 4-0. Bjarni mætti Wesley einnig árið 2013 þegar sá síðarnefndi varð heimsmeistari. Í tvímenningi spilaði Bjarni með Pétri Rúðrík Guðmundssyni úr Grindavík. Þeir töpuðu 4-1 fyrir mótherjum frá Kína. Í liðakeppni Íslands voru mótherjarnir Frakkland og Ítalía og töpuðust þeir leikir 9-2 og 9-3. Bjarni segir að gengið þeirra hafi ekki verið sem skildi að þessu sinni í samtali við heimasíðu Þórs. „Þetta fer í reynslubankann hjá okkur og við stefnum á að gera miklu betur næst,“ sagði Bjarni Sigurðsson pílari úr Þór. Bjarni hefur verið valinn pílumaður Þórs undanfarin fjögur ár

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026