Bjarki verður nýr skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar
Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·

Bjarki Ármann Oddsson hefur verið ráðinn sem skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar og tekur hann við starfinu af Stefáni Árnasyni þann 1.maí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eyjafjarðarsveitar.
Þar kemur fram að Bjarki er vel að starfinu kominn, en hann hefur meistaragráðu frá Háskóla Íslands á sviði opinberrar stjórnsýslu og mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnsýslu sveitarfélaga, en hann hann hefur starfað í sveitarstjórnarmálum síðastliðinn áratug.
Tilkynninguna í heild sinni má lesa með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










