MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Birna Eyfjörð semur, syngur og pródúserar allt sitt efni

Eftir María Hjelm·
AI Background Image for Existing Design (1)
kaffid.is

Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir er 25 ára lagahöfundur og söngkona frá Grenivík. Nýlega gaf Birna út lagið Leiddu mig og stefnir að útgáfu fyrstu smáskífu sinnar á næstunni.

Hefur komið víða að þrátt fyrir ungan aldur

Birna lauk klassísku píanónámi frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar árið 2019 og hefur verið virk í tónlistarlífinu allar götur síðan.

„Sem nýútskrifaður menntskælingur frá Menntaskólanum á Akureyri fékk ég starf sem aðstoðarkona og uppritari Atla Örvarssonar. Árið 2021 fluttist ég út til Valencia á spáni þar sem ég sótti söng- og píanónám hjá bandaríska tónlistarháskólanum Berklee College of Music. Þar valdi ég að sækja skiptinám frá höfuðstöðvunum í Boston og nema eitt ár sem skiptinemi í sólríku Valencia þar sem skólinn er með útibú. Vegna skólagjaldanna sá ég mér ekki fært að halda áfram eftir árið þrátt fyrir að hafa komist á dean’s list skólans báðar annirnar. Reynslan var hins vegar ómetanleg bæði sem nemi og ekki síður sem starfsmaður Atla Örvarssonar og því fannst mér ég vera tilbúin að uppskera,“ segir Birna í samtali við Kaffið.is.

Í dag býr Birna í Reykjavík og ver dögum sínum við að semja nýja tónlist í stúdíóinu Tónhyl.

„Þetta er vægast sagt draumalíf að fá að vera partur af slíku samfélagi þar sem fólk hjálpast að við sköpun og flutning tónlistar,“ segir Birna. 

Sköpunarferlið sem núvitund

Birna segir sköpunarferlið vera það sem heilli hana mest við tónlistina.

„Mér finnst ekkert skemmtilegra en að semja tónlist. Oft er ég ekki með texta tilbúinn né hljómagang, heldur kemur þetta oft til mín á sama tíma þegar ég sest við hljóðfærið mitt. Ég sem oftast við píanó eða syntha en hef farið að semja á gítar líka. Mér finnst ég þurfa að búa yfir ákveðinni ró og einlægni þegar semja á góð lög. Stundum held ég að trixið sé að leyfa sér verða aftur barn í smá stund.“

Birna er ekki nýgræðingur þegar kemur að tónsmíðum og hefur meðal annars fengist við að semja kvikmyndatónlist. Hún segir það þó allt annað ferli en að semja eigin lög.

„Þá er maður með senu og ákveðið viðfangsefni til að elta en að mínu mati er mun skemmtilegra og meira gefandi að semja gott þriggja mínútna lag með söng og texta.“

Valdefling í gegnum listsköpun

Nýjasta lag Birnu Eyfjörð er á persónulegu nótunum og vitnar í hvernig hún átti það til að vera áttavillt og fylgja straumnum í stað þess að standa með sjálfri sér. 

„Ég vissi í raun ekki hver ég var og hvað ég vildi hverju sinni og var alls ekki vör um þessa tilvistarkrísu, enda ung og enn að læra á lífið. Fólki þykir ég oft þægileg því ég er mjög oft til í allt sem lagt er til. En ég er svo sannarlega að vinna í þessu núna og það eitt að verða listamaður neyddi mig í að spyrja sjálfa mig hver ég væri í raun og veru, hvað ég vil og hvað ég stend fyrir. Það var svo valdeflandi reynsla að ég mæli með því fyrir hvern sem er að reyna að finna sig í gegnum listina.“

Aðspurð segir Birna að kveikjan að viðlaginu hafi nokkurn veginn komið í einni bunu þegar hún sat við píanóið.

„Ég fékk bara ekki nóg af melódíunni. Mér fannst þetta vera skemmtilegt og groovy lag sem gæti verið skreytt með einhvers konar „sjálfskoðunar-texta.“

Birna Eyfjörð er með skýra sýn þegar kemur að því að semja tónlist og segist dýrka hljóðheiminn sem hún hefur náð að skapa, sem er sambræðingur af gömlum 70’s hljóm og hlýju.

„Mér finnst fátt skemmtilegra en að spila djassaða hljóma á góðan Rhodes og taka upp margar raddir sem mynda hálfgerðan kór ofan á. Ég sæki mikinn innblástur í soul music og lít mikið upp til tónlistarfólks eins og Yebba, Masego, Olivia Dean og fleiri.“

Birna sér sjálf um allar hliðar ferlisins, hún semur, syngur, spilar og pródúserar allt sitt efni. Þannig leggur hún metnað og áherslu á að byggja upp lagasafnið sitt upp á sínum eigin forsendum.

Markmiðið að gleðja fólk með tónlistinni

„Ég vona ekkert heitar en að tónlistin mín kveiki í lífsgleði fólks og fái það til að brosa og dansa. Einnig vil ég að þetta hvetji hvern sem er að taka á skarið og skapa. Ég er viss um að það besta sem við getum gert er að búa til list sem við viljum sjálf fá að njóta, þannig uppfyllum við okkar einstaklingsþörfum sem og annara og heimurinn verður í kjölfarið tengdari og fallegri.“ 

Hér má hlusta á lagið:

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026