Birna Eyfjörð gefur út lagið Leiddu mig
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Grenvíkingurinn Birna Eyfjörð gaf í dag út lagið Leiddu mig. Birna hefur undanfarið verið að skapa eigin tónlist en áður hefur hún einkum fengist við kvikmyndatónlist. Hún stefnir að útgáfu fyrstu smáskífu sinnar á næstunni.
„Þegar þú ert með kvikmyndina ertu alltaf með eitthvað viðfangsefni til að elta, styðja og lyfta. Ég hef verið mjög góð í að setja mig í spor annarra en minna vitað hver ég er og það er svo gott að semja tónlist fyrir sjálfan sig því þá þarftu að komast að því hver þú ert og hvað þú vilt segja,“ sagði Birna í viðtali við Landann á RÚV fyrr á árinu
Lagið Leiddu mig er samið af Birnu og tekið upp í stúdíói hennar, Tónhyl. Hlustaðu á lagið hér að neðan:
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










