Tónlistarmaðurinn Birkir Blær Óðinsson gaf á dögunum út sitt fyrsta lag. Lagið heitir Picture og er aðgengilegt á öllum helstu tónlistarveitum.
„Lagið er frekar persónulegt fyrir mig og fjallar um það að brjótast út úr vanlíðan. Lagið er frekar alvarlegt en það er samt ákveðin bjartsýni í því,” segir Birkir í samtali við Kaffið.
Sjá einnig:Sjáðu magnaðan flutning Birkis Blæs á laginu Picture
Hann segir að það hafi ekki tekið hann mög langan tíma að semja lagið og það hafi komið frekar náttúrulega. Birkir hefur verið duglegur að spila á bæjarhátíðum og tónleikum síðustu mánuði en segist nú ætla að einbeita sér að því að semja efni. Hann stefnir að því að gefa út smáskífu eða plötu í vetur.
Hlustaðu á Picture eftir Birki Blæ
UMMÆLI