Birgir til Finnlands með U17
Eftir Ingólfur Stefánsson·
Birgir Baldvinsson er í U17 ára landsliðshóp Íslands í knattspyrnu sem tekur þátt í undakeppni EM í Finnlandi.
Liðið mun leika gegn heimamönnum miðvikudaginn 27. september, Færeyjum laugardaginn 30. september og Rússum þriðjudaginn 3. október. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðil EM og því til mikils að vinna.
Birgir spilar sem vinstri bakvörður og var í sumar fyrirliði 3. flokks karla hjá KA. Hann átti gott sumar með liði sínu sem endaði í 3. sæti A-deildar og urðu bikarmeistarar Norður- og Austurlands.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










