Bílvelta varð á Strandgötu á Akureyri um hálfþrjúleytið í nótt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp hann við meiðsli, að sögn lögreglunnar á Akureyri.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Ekki er ljóst hvað olli slysinu, en mikil hálka var á götum bæjarins.
Bíllinn var óökufær á eftir og var hann fjarlægður með dráttarbíl.











