Bilun í umferðarljósum á gatnamótum Glerárgötu og Tryggvabrautar

Bilun í umferðarljósum á gatnamótum Glerárgötu og Tryggvabrautar veldur því að ljósastýringin virkar ekki. Unnið er að viðgerð en viðbúið er að truflanir verði á þessu fram eftir degi samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.

Ljósin geta dottið út og í dag verður slökkt á þeim tímabundið til þess að staðsetja bilunina.

„Í ljósi þessa beinum við því til ökumanna að fara varlega, sýna tillit og fara eftir þeim umferðarmerkjum sem eru til staðar,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!