Bíllausi dagurinn haldinn hátíðlegur í Kjarnskógi

Bíllausi dagurinn haldinn hátíðlegur í Kjarnskógi

Í tilefni samgönguviku verður hjólafjör og fjölskyldudagur í Kjarnaskógi á sunnudaginn á vegum Akureyrarbæjar og Hjólreiðafélags Akureyrar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, einnig segir þar:

Viðburðurinn hefst klukkan 14 og eru gestir hvattir til að koma hjólandi í skóginn. Gera má ráð fyrir að það taki um 20-30 mínútur fyrir miðlungsvant hjólreiðafólk að hjóla í Kjarnaskóg frá Ráðhústorgi svo dæmi sé tekið. 

Hist verður við leikvöllinn sunnan við strandblakvellina, völundarhúsið og ærslabelginn og þaðan verður hjólað saman um nokkra stíga í skóginum með fólk frá hjólreiðafélaginu í broddi fylkingar. Þessi hjólatúr hentar öllum, ungum sem öldnum.

Að hjólafjöri loknu verður boðið upp á grillaðar pylsur og safa meðan birgðir endast.

Sjáumst hress í Kjarnaskógi á sunnudaginn! Öll velkomin

UMMÆLI