Gæludýr.is

Berum virðingu fyrir vatninu – Sjáðu myndbandið

Berum virðingu fyrir vatninu – Sjáðu myndbandið

Norðurorka hefur útbúið nýtt myndband sem sýnir hversu auðvelt það er að sóa vatni á hverjum degi. Reglulega er rætt um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir vatninu og að sóa því ekki. Þrátt fyrir það sóum við líklega flest vatni á hverjum einasta degi.

Í tilkynningu frá Norðurorku segir: Vatn er án efa ein verðmætasta auðlind jarðar. Íslendingar búa við þau forréttindi að hafa gott aðgengi að fersku vatni sem ekki þarf að meðhöndla fyrir neyslu. Langstærsti hluti landsmanna hefur greiðan aðgang að fersku vatni, en rúmlega 95% er ómeðhöndlað grunnvatn. 

Íslendingar nota mjög mikið af vatni og er óhætt að segja að við verðum oft kærulaus við notkunina og látum vatnið renna að óþörfu. Einhverjir kunna að velta fyrir sér hvort það skipti einhverju máli þar sem við eigum svona mikið vatn. Skiptir máli þó vatnið „hafi viðkomu“ heima hjá okkur á leiðinni út á sjó? Einfalda svarið við þessu er já, það skiptir máli. Því þeim mun meira vatn sem við notum, þeim mun meiri vinnu og kostnað þarf að leggja í að koma vatninu til notanda, því það gerist ekki að sjálfu sér.

Það að bera virðingu fyrir vatninu er því mikilvægt vegna umhverfissjónarmiða og svo er það líka fjárhagslega heppilegt. Þegar neyslan eykst getur t.d. þurft að finna ný vatnsból til að virkja, tengja þau við kerfið, byggja tanka og dæla meira vatni til viðskiptavina með tilheyrandi kostnaði og vinnu. Í raun er það svolítið eins og að henda peningum í ruslið ef við förum í þá vinnu aðeins til að mæta sóun á vatni. 

Þess vegna hefur Norðurorka látið útbúa myndband sem vonandi minnir fólk á að bera virðingu fyrir vatninu, ekki bara vegna fjárhagslegs ávinnings, heldur ekki síður vegna þess að við hjá Norðurorku viljum í öllu okkar starfi hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi.

Sambíó

UMMÆLI