Bergrós Ásta framlengir við KA/Þór

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, sem er uppalin hjá KA/Þór, skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við félagið og er nú samningsbundin liðinu út tímabilið 2026-2027.

„Bergrós Ásta sem er gríðarlega efnilegur leikstjórnandi en hún verður 18 ára síðar á árinu tekur mikið til sín í leikjum, er gríðarlega sterk maður á móti manni og hefur gott auga fyrir línusendingum. Með dugnaði og vinnusemi þá hefur hún tekið gríðarlega miklum framförum undanfarin ár og hefur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði KA/Þórs undanfarin tvö tímabils,“ segir á vef KA og Þór, þar segir einnig:

Á nýliðnu tímabili lék hún alla leiki liðsins er KA/Þór stóð uppi sem sigurvegari í Grill66 deildinni og það án þess að tapa leik. Bergrós stýrði spili liðsins og átti fjölmargar stoðsendingar á liðsfélaga sína auk þess sem hún var næstmarkahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu. Þá var hún valin efnilegasti leikmaður KA/Þórs veturinn 2023-2024.

Bergrós er einnig fastamaður í yngrilandsliðum Íslands og var hún var hluti af U-18 landsliðinu sem gerði góða hluti á HM í Kína síðasta sumar. Það eru ákaflega jákvæðar fréttir að hún sé búin að skrifa undir nýjan samning og hlökkum við til að fylgjast áfram með henni næstu árin.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!