Benecta í samstarf með Þór

Þór tilkynnti í dag að knattspyrnudeild Þórs og líftæknifyrirtækið Genis hafa gert með sér samstarfssamning til eins árs. Leikmenn meistaraflokks munu þar með hafa aðgang að fæðubótarefninu Benecta™ sem Genis setti á markað árið 2016. Benecta inniheldur kítófásykrur ásamt vítamínum og steinefnum sem styðja við eðlileg efnaskipti, auka orku og draga úr þreytu. Vörurnar afrakstur tæplega tveggja áratuga rannsóknar- og þróunarvinnu á kítófásykrum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!