MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 18. ágúst

Eftir Ingólfur Stefánsson·
beintfrabyli
kaffid.is

Beint frá býli dagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í fyrra, á sex lögbýlum hringinn í kringum landið, einu í hverjum landshluta.

Tilefnið var 15 ára afmæli félagsins, en tilgangurinn að kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum og byggja upp tengsl milli þeirra.

Á býli gestgjafanna söfnuðust saman aðrir framleiðendur af lögbýlum úr landshlutanum til að kynna og selja sínar vörur. Ýmis afþreying var í boði til viðbótar við það sem býlin sjálf höfðu upp á að bjóða og var dagurinn sérlega barnvænn.

Afar góð mæting var í öllum landshlutum og almennt mikil ánægja. Skipuleggjendur áætla að 3-4000 manns hafi lagt leið sína á bæina samanlagt. Því var ákveðið að gera daginn að árlegum viðburði.

Fleiri smáframleiðendur með í ár

Beint frá býli dagurinn verður aftur haldinn síðasta helgidag fyrir skólabyrjun sem í ár er sunnudagurinn 18. ágúst.

Öllum þeim ríflega 200 framleiðendum sem eru í Samtökum smáframleiðenda matvæla sem Beint frá býli er aðildarfélag að, verður boðið að taka þátt, en ríflega helmingur þeirra er á lögbýlum.

Sjö gestgjafar

Gestgjöfunum hefur verið fjölgað úr sex í sjö, þar sem í ár verða tveir á hinu víðfeðma Suðurlandi. Á Suðurlandi eystra verður gestgjafinn Háhóll geitabú á Hornafirði. Á Suðurlandi vestra Hreppamjólk í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Á Vesturlandi verður gestgjafinn Grímsstaðaket á Grímsstöðum í Borgarbyggð. Á Vestfjörðum verður gestgjafinn Húsavík á Ströndum, en hátíðin verður sameinuð Hrútaþukli og verður því haldin á Sauðfjársetrinu Sævangi sem er rétt hjá.

Á Norðurlandi vestra verður gestgjafinn Brúnastaðir í Fljótum í Skagafirði og á Norðurlandi eystra Svartárkot í Bárðardal.Á Austurlandi verður gestgjafinn Sauðagull á Egilsstaðabúinu í Fljótsdal, í samstarfi við Óbyggðasetrið sem er staðsett á býlinu.

Yfirlit yfir alla viðburði má finna á beintfrabyli.is

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026