Beint flug til og frá Norðurlandi í vetur
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Það verður áfram nóg af möguleikum fyrir Norðlendinga til að ferðast um allan heim frá Akureyri í vetur. Breska flugfélagið easyJet flýgur til London og Manchester og byrja vetrarflugin að nýju í október.
Svissneska flugfélagið Edelweiss var með áætlunarflug yfir sumartímann til Zürich í Sviss en yfir vetrartímann verður leiguflug á sama áfangastað.
Ferðaskrifstofan Verdi Travel selur flug bæði til Zürich og áfangastaði í Hollandi ásamt því að skipuleggja pakkaferðir og selja stök flugsæti í sólar- og borgarferðir frá Akureyri. Meiri upplýsingar um þær ferðir má finna með því að smella hér.
Hér að neðan má sjá yfirlit frá Markaðsstofu Norðurlands yfir bein flug til og frá Akureyri 2026 til 2027

Tengdar greinar
Uppfært: 8. september 2026










