Báru sorgarbönd í leik gærkvöldsins til heiðurs minningar Drafnar
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Leikmenn Þórs báru sorgarbönd þegar liðið mætti KA í nágrannaslag í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Sorgarböndin báru þeir til heiðurs minningar Drafnar Þórarinsdóttur sem lést þann 10.júlí síðastliðinn og verður borin til hinstu hvílu í dag.
„Dröfn vann gríðarmikið sjálfboðaliðastarf fyrir Þór á sinni ævi. Þá hafa afkomendur Drafnar verið áberandi í starfi félagsins á mörgum sviðum, bæði innan vallar og utan. Knattspyrnudeild sendir ástvinum Drafnar innilegustu samúðarkveðjur,“ segir í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Þórs.
Leiknum lauk með 0-0 jafntefli. Hægt er að lesa meira um leikinn á vef Fótbolti.net með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










