Barnamenningarhátíð á Akureyri fer fram dagana 11.–23. apríl 2026. Markmið hátíðarinnar er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og skapa þeim tækifæri til að njóta lista og menningar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem efla sköpunarkraft og frumkvæði.
„Leiðarljós Barnamenningarhátíðar eru fagmennska, fjölbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi fyrir öll börn og ungmenni. Hátíðin fer fram víðs vegar um Akureyri þar sem nýtt eru fjölbreytt og spennandi rými sem bjóða upp á tækifæri til sköpunar, upplifunar og miðlunar. Meginreglan er að aðgengi að viðburðum sé gjaldfrjálst,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
Barnamenningarhátíð á Akureyri byggir á markmiðum Menningarstefnu Akureyrarbæjar og aðgerðaráætlun barnvæns sveitarfélags.
Viðburðadagatal hátíðarinnar má finna HÉR.










