Baldvin sló Íslandsmetið í 10.000 metra hlaupi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon hjóp í úrslitum í 10.000 metra hlaupi á Evrópumótsinu í frjálsíþróttum á laugardaginn. Baldvin varð í 13. sæti af 25 keppendum og sló Íslandsmet.
Fyrir úrslitin átti Baldvin 23. besta tímann af öllum keppendum. Fyrir hlaupið var besti tími Baldvins í 10.000 metrum er 28 mínútur og 57,17 sekúndur frá árinu 2023.
Á laugardaginn hljóp hann á 28 mínútum og 25,67 sekúndum og sló Íslandsmetið. Hann gaf hressilega í í lok hlaupsins og var nálægt því að ná 12. sætinu.
Svíinn Andreas Almgren kom fyrstur í mark á 27 mínútum og 23,44 sekúndum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










