Bæklingur um þjónustu og tækifæri fyrir eldri íbúa

Akureyrarbær hefur gefið út nýjan upplýsingabækling fyrir eldri íbúa bæjarins undir heitinu Lífsgæði á efri árum – þjónusta og tækifæri. Greint er frá á vef bæjarins í dag.
Þar segir að markmið bæklingsins sé að birta á einum stað hagnýtar upplýsingar um þjónustu, stuðning, félagsstarf, hreyfingu, menningu, samgöngur og önnur tækifæri sem standa eldri Akureyringum til boða.
Bæklingurinn er ætlaður eldri íbúum Akureyrarbæjar og stuðlar að því að auðvelda aðgengi að skýrum og áreiðanlegum upplýsingum. Þar má meðal annars finna upplýsingar um félagsmiðstöðvarnar Birtu og Sölku, stuðningsþjónustu, heimahjúkrun, verkefnið Virk efri ár, menningarstarf, afslætti fyrir eldri borgara og ýmis önnur úrræði og þjónustu.
Bæklingurinn er gefinn út bæði á prenti og í rafrænni útgáfu. Hann er unninn í samstarfi starfsfólks Akureyrarbæjar, fulltrúa EBAK og annarra sem koma að málefnum eldra fólks. Með útgáfunni vill Akureyrarbær styðja við virkt, öruggt og innihaldsríkt líf á efri árum og auðvelda eldri íbúum og aðstandendum þeirra að finna upplýsingar um þá þjónustu og þau tækifæri sem standa til boða. [
Útprentað eintak af bæklingnum má nálgast í þjónustuveri Akureyrarbæjar í Ráðhúsi og Glerárgötu 26, á skrifstofu EBAK og í félagsmiðstöðvum Birtu og Sölku.
Hér má nálgast rafræna útgáfu bæklingsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 9. september 2026










